smælaðu framan í heiminn og heimurinn smælar framan í þig
Skóli og skólafélagar
23.12.2008 00:11:35 / myndavel

Kominn tími á skriftir

Jæja eins og flesir nú vita þá kom lítil Prinsessa í heiminn. Þann 14 desember sl.
síðustu dagarnir á undan voru þó dálítið erfiðir þar sem að það var búið að áhveða að það ætti að gangsetja mig en það virtist sem að öll börn sem væntanleg vorur á selfoss svæðinu væru staðráðinn að mæta á svæðið þessa viku.

Endirinn varð sá að ég var sett af stað í Reykjavík. Sem var svo sem í lagi og eftir á var ég bara mjög fegin því að ég hefði ekki fengið mænudeifingu á selfossi.

En allavegana ég fór föstudaginn 12 desember til Reykjavíkur. Mér fannst það alveg rosalega erfitt og aðalega vegna þess að laugardaginn 13 des átti snúðurinn minn hann Ingimar að mæta í Beltapróf í íþróttinni sinni og mér fannst það alveg hræðileg tilhugsun að mamma yrði ekki á svæðinu til að horfa á. En það Reddaðist nú allt saman með góðri og Diggri aðstoð frá henni Sigrúnu minni.
En alla vegna ég fór í gangsetningu kl 14 á laugardegi og littla prinsessan lét ekkert segja sér hvað ætti að gera og kom hún ekki í heiminn fyrr en kl 6 á sunnudagsmorni.

ég fór svo í sængurlegu hérna á selfossi og var það mjög notalegt.

En núna erum við komnar hérna heim í kotið okkar og höfum það alveg mjög gott. Allt gengur bara vel. Hún littla okkar sefur og drekkur er reyndar búinn að vera að fá smá kveisur í mallan sinn en við vonum nú að það sé allt að lagast.

Stóri bróðir er rosalega stolltur og einnig er hann svo duglegur að hjálpa til.
En það eru víst að koma jól, þó svo að ég skal alveg viðurkenna það að það sé frekar langt frá því að vera efst á mínum baugi þessa dagana.
til dæmis hélt ég að ég hefði búið til yfir drifið nóg af jólakortum en það vantaði alveg ca helminginn upp á það. og ég er bara ekki að meika það að búa til Fleiri.

Svo að ef að þið fáið ekki jólakort frá mér þetta árið þá bara sendi ég okkar bestu jólakveðjur hér með. Kortin koma á næsta ári.

Að lokum langar mig að láta að fylgja hérna með mynd af Gullmolunum mínum. Ég er svo stollt mamma að eiga 2 svona yndisleg börn.

Gleðileg jól. vonandi hafa allir þeir sem nenna að lesa þetta það gott yfir hátíðirnar, ég ætla allavegana að gera það.

Bestu kveðjur Gunna.

» 2 hafa sagt sína skoðun

10.12.2008 10:38:37 / myndavel

39 vikur og 2 dagar

jæja jæja Krílið kúrir enn í bumbuni en ekki lengi.

er víst á leið upp á spítala núna eftir nokkrar mínútur á leið í gagnsetningu.

Þeir vilja setja mig af stað núna sökum þess að blóðþrýstingurinn er hækkandi og hreifingar hafa minkað.
Einnig sýndi vaxtasónar að krílið stækkaði ekki eins mikið og þeir höfðu gert ráð fyrir það er samt allt í góðu lagi ennþá en áður en að eitthvað fer úrskeiðis.

Ég skal alveg viðurkenna það að ég er frekar kvíðinn og stressuð. en vonum bara að þetta fari allt vel.

Littli kallinn minn var voðalega spenntur þegar hann fór í skólan í morgun, að hann væri nú að fara að verða stóri bróðir loksins.

og það áður en að jólasveinarnir mæti á svæðið. Ég held að hann hafi aldrei verið eins spenntur fyrir því að setja skóinn út í glugga.


» 4 hafa sagt sína skoðun

23.11.2008 12:49:58 / myndavel

36 vikur og 6 dagar

Í dag er ég kominn jafn langt á þessari meðgöngu og ég gekk með hann Ingimar minn.

á hádegi þann 12 mars 2002 ( 36v6d) byrjaði vatnið að leka hjá mér og ég fór upp á spítala og hann kom í heiminn 24 tímum seinna.

Vá hvað mér finnst vera langt síðan og mikill munur á mér núna og þá. Þá gat ég bókstaflega ekki gengið og var ólétt frá tám og upp úr allan hringinn. Núna er ég bara frekar spræk ennþá og finnst fína kúlan mín bara vera að pompa niður og minka með hverjum deginum en ekki stækka.
Allt vesenið gengur vel að stjórna, Ég er búinn að ná blóðþrýstingnum vel niður og hann er lægri núna heldur en þegar ég var gengin 7 vikur.
Sykursýkini næ ég að hafa vel stjórn á og er undir mörkum í all flestum mælingum það er þá einna hels kannski um helgar sem ég poppa upp fyrir en þær sögðu mér það á lansanum að það væri allt í lagi ef að ég passaði mig að láta það ekki verða meira þá væri það í góðum málum að leyfa sér pínu um helgar.

Hérna heima er allt í lokaundirbúningi, Sveinn málaði litla herbergið í gær og svo í dag ætlum við að setja fallegan borða og raða húsgögnunum sem við eigum inn í herbergið. Við ætlum að setja allt inn í herbergið en erum svo með vöggu inni hjá okkur. Það er voðalega gott að geta sett allt barnadótið inn í eitt herbergi en ekki vera með allt hérna inn í stofu.

Þá getum við líka farið að undirbúa jólin við Ingimar erum búinn að versla okkur grunn af piparkökuhúsi sem að okkur langar til að freystarst til að setja saman og skreyta.

Annars líður mér bara vel full af orku og á fullu í hreiðurgerð eins og heyris. ég er nú samt farinn að finna fyrir aukunum verkjum og samdráttum þannig að við verður bara að bíða og sjá hvenær krílið lætur sjá sig. 
 
Ég ætla að láta fylgja með fallega mynd af mér sem ég er svo lukkuleg með. Fór í klippingu núna í síðustu viku og heimsótti svo hana Sigrúnu og bað hana að spella af mér einni mynd og aldrei þessu vant er ég frekar lukkuleg með hana.



» 1 hafa sagt sína skoðun

28.10.2008 19:43:15 / myndavel

Ekki gerð til að ganga með börn

Nei það er sko rétt að ég er ekki gerð til að ganga með börn.
Ég var semsagt í mæðraskoðun í dag og það kom í ljós að sykurþollsprófið sem ég fór í fyrir 3 vikum síðan var jákvætt en það bara gleymdist að láta mig vita. arrrrrrg

þannig að staðan er svona núna, ég er með of háan blóðþrýsting og þarf að taka lífinu með ró.
ég er kominn með meðgöngusykursýki og þarf að fara til Reykjvíkur á morgun í ráðgjöf á sykursýkisdeildina og svo aftur í næstu viku á áhættumeðgöngudeildina í viðtal.
Versta finnst mér að ég kem ekki til með að meiga eiga barnið mitt hérna á Selfossi sem ég var að vonast eftir að gera heldur verð ég að eiga í bænum þar sem ég má líklega hvorki nota sturtu né bað sem verkjameðferð vegna þess að ég er í áhættumeðgöngu.

Arrrg ég var búinn að plana sko allt allt annað. En það er séns að ég fái að liggja sængurleguna hérna á selfossi ef að það er pláss því þá er möguleiki að ég verði flutt austur fljótlega eftir að barnið fæðis ef að allt gengur vel.

æ ég er bara ógeðslega fúl og mér finnst þetta svo mikið mál eitthvað fann það alveg strax að ég datt niður í depurð út af þessu og mér finnst ég vera dálítið í lausu lofti og ekki vita alveg hvað má og má ekki og það virkar ekki vel á mig ég var svo búinn að plana að þetta yrði allt í lagi.

En það má samt horfa í ljósan punkt í þessu máli öllu saman að það eru ekki nokkur möguleiki á því að ég verði látin ganga fram yfir verð mjög líklega ekki látin ganga nema 39 vikur í mesta lagi svo að í dag eru alls ekki meira en 5 vikur og 6 dagar eftir.

Ég bara verð að horfa í þennan ljósa punkt og vitandi það að fyrir jól þá verð ég kominn heim.

Núna verð ég bara að fara setja allt á fullt og klára allar jólagjafirnar hið snarasta til að það sé allt klárt fyrir 1 des og ég geti verið að dúllast í kósýheitum heima í desember með lítið kríli

» 1 hafa sagt sína skoðun

09.10.2008 14:23:30 / myndavel

þetta styttist

Samkvæmt fyrstu skráningu á ég að eiga 10 des og þá er ég kominn 31v og 1d. í dag.
Sigrún Systir kom hérna í gær og við fórum í sameiningu í gegnum barnafatakassan með minnstu stærðunum og tókum til það minnst til að gera klárt í þvott.

Svo er ég að reyna að moka út úr herberginu sem ég ætla að hafa kommoðuna góðu en það gengur hægt. langar svo að klára þetta 1 2 og 3 en ég hef ekki svo mikla orku og erfitt að pakka skrappdótinu öllu niður þar sem að ég hef ekki hugmynd um hvernig ég að að koma því fyrir þannig að ég geti komist í það.

Ég fór núna á Þriðjudaginn í bæinn og verslaði 1 stykki ungbarnabílstól og er alveg rosalega lukkuleg að vera búin með það, svo hef ég verið að sanka að mér svoa því flesta nauðsinlega sem ég þarf að hafa við hendina hérna heima allavegana fyrstu dagana.

Þetta gengur allt bara vel hjá mér núna, ég náði blóðþrýstingnum niður en núna í síðustu skoðun hafði hann hækkað aftur en það er kannski ekki að marka miða við stöðu þjóðfélagsins í dag þótt að maður sé að reyna að vera rólegur þá hefur þetta auðvita áhrif. En svo þarf ég að fara í sykurþolspróf núna á fötudaginn því að ljósuni minni finnst kúla stækka eylítið of hratt. Ég kvíði því dálítið en finnst samt jákvætt að það er fylgst mjög vel með mér. Núna þarf ég bara að vona að krílið haldist á sínum stað í amk 7 vikur í viðbót því ég verð að vera genginn allavegana 37 vikur ef ég ætla að fá að eiga hérna á selfossi og það vil ég hellst.

jæja svona í lokinn kemur 1 mynd af mér sem ég spellti af mér í dag.

http://s3.frontur.com/img/1724/20081009132724_0.jpg

» 3 hafa sagt sína skoðun

25.09.2008 17:14:44 / myndavel

úff þreytt

Já ég er sko alveg búinn eftir daginn, og samt var ég ekkert að gera þannig, jú ég þurfti að bruna til Rvk og útrétta nokkur mál, Þá aðalega út af lífeyrissjóðsmálunum mínum.

svo tók ég einn hring í kringluni og tölti mér inn í svona þær hellst búðir sem að selja barnafatnað, enda að koma tími á að versla smá á þetta nýja kríli sem styttist óðum í.

ég fann ekkert sem mig langaði í nema 2 samfellur og af því að mig langaði bara í svona samfellur en ekki hinsegin þá auðvita þurftu þær að kosta alveg hellings pening.
ég verð að hætta að vera svona vandlát á það sem mig langar í. heheheh

svo var tekinn rúntur í baby sam, oo og fífu og svona skoðaðir þessir helstu stóru hlutir sem að vantar og reynnt að leysa úr vagna vandamálinu stóra. Fékk varahluti í fífu sem ég ætla að prófa að sjá hvort að leysi ekki þetta vagnavandamál. Ég er nefnilega ekki að tíma að kaupa glænýjan vagn, bara vegna þess að skyggnið á þessum gamla sé pínulitið bilað.

Svo skoðaði ég barnabílstóla og er alveg búinn að finna stólinn sem mig langar í og get vonandi farið og verslað hann um mánaðarmótinn.

Annars finnst mér voðalega finndið hvað má og má ekki í þessum barna bisnes. það eru komnir allskonar hlutir sem eru í boði, sem alls ekki voru í boði þegar Ingimar var lítill. og það er svo finndið að vera að skoða umræðurnar til dæmis á barnalandi.

Það er til dæmis alveg það heitasta núna að vera með taubleijur, og líka að vera með alskonar svona poka til að reyra barnið við sig allan sólahringinn.

Ég get sko alveg sagt ykkur það að ég ætla ekki að leggja það á mig að vera með taubleyjur það er sko alveg nógu mikill þvottur á þessu heimili að ég fari nú ekki að bæta því ofan á. og með þessa poka jú jú þeir eru ábygglega sniðugir en æ ég veit ekki eru ekki að heylla mig. Ég átti svona baby björn þegar ég var með Ingimar og það var alveg oki en var ekki mikið notað.


» 0 hafa sagt sína skoðun

24.09.2008 13:47:37 / myndavel

Jeyj rigningalaus dagur

Vá hvað það léttir yfir manni að fá að sjá sól til tilbreytingar, er alveg að migla í þessari rigningu.

Annars er fínnst að frétta ég eldist bara vel. Ég fékk nú nokkra pakka og var það bara gaman.

Lífið er farið að komast í fastar skorður hérna í túninu, Ingimar unir sér mjög vel í skólanum og hann er vel kominn af stað með það að læra stafina og farinn að koma heim með heimaverkefni úr skólanum og aðeins að byrja að lesa. Einnig er hann að koma heim með reiknishefti.

Honum finnst alveg æði að vera í tae kwon do og er þetta greinilega eitthvað sem á vel við hann.

Meira að segja erum við skrappdívurnar farnar að hittast aftur reglulega þannig að listaverkin láta ekki á sér standa. Gerði til dæmis alveg geggjað flotta síðu í gær sem ég er svo ánægð með. ég ætla að láta hana flakka hérna með.
Hún er auðvita af fallega prinsinum mínum og var myndin tekin í desember sl þegar var verið að reyna að ná jólakortamynd.

http://s3.frontur.com/img/1724/20080924133631_0.jpg

» 0 hafa sagt sína skoðun

19.09.2008 16:35:37 / myndavel

Ég á afmæli í dag

Ég á afmæli í dag
ég á afmæli í daaaaaag
ég á afmæli í dag.

jeyj Enn einn afmælisdagurinn runninn upp, og þetta er búið að vera alveg reglulega góður dagur. Ég gaf sko öllum húsverkum frí í dag og var bara að dúlla mér hérna heima. Tók mér videó, las og saumaði út í mynd sem ég er að dunda mér í.

Ég fékk fullt af fallegum kveðjum inn á skrappspjallinu mínu svo gaman að fá svona kveðjur til að vita að maður er ekki einn  gleymdur í heiminum.

Svo þegar ég fór að ná í hann Ingimar fórum við í bakaríið og keyptum okkur þessa líka dýrindis Súkkulaði köku.

Ég er ekki búinn að fá neina pakka og bíst sko ekki við neinum þar sem að ég er ekki í skrappleiknum núna en ég er búinn að fá knús og kossa frá honum Ingimari mínum og það er sko meira virði en nokkuð annað.

 


» 1 hafa sagt sína skoðun

05.09.2008 12:09:14 / myndavel

Á fullu í hreiðurgerð

já ég er sko að byrjuð að hreiðra um mig, er ábygilega að gera alla hérna á heimilinu alveg vitlausa. Sl vikur er ég sem sagt búinn að ráðast á alla fataskápa í húsinu og flokka hvað á að geyma, henda eða að setja í rauða krossinn.

Einnig erum við að verða búinn að taka Ingimars herbergi Alveg í gegn, Breyta og bæta, hann er að fá svona stóru stráka herbergi.

Þetta er rosalega finndin tilfinning ég man ekki eftir að hafa fengið hana þegar ég gekk með Ingimar enda kannski ekki aðstæður til þess. Núna er ég sko búinn að gera lista hvað mig langar til að Gera í hvaða herbergi fyrir sig heheheheh. Ég reyndar geri nú ekki mikið í einu tek svona smá á hverjum degi enda hef ég svo sem alveg nógan tíma.

Annars er bara gott að frétta mér líður bara vel, er líka að koma þessi svakalega myndalega bumba á mig og það fer að verða erfiðara að standa upp og svoleiðis. Enda kominn einhverjar 26 vikur.

Ingimar er byrjaður í skólanum sínum og líkar bara vel, hann er rosalega duglegur og fær góða umsögn frá kennaranum hann fékk reyndar flensu núna í vikuni og þegar það var hringt og ég beðin að sækja hann lá við að ég segði ha Ingimar veikur ( það kemur sko ekki oft fyrir) en littli snúðurinn minn varð bara mjög veikur í þetta skiptið en er sem betur fer orðinn hress aftur.

Annars er ég rosalega feginn að vera ekki kominn á tíma núna á meðan ríkið er að draga á sér lappirnar með að gefa ljósmæðrum mannsæmandi laun. Þetta hefur ekki haft mikil áhrif á mig enn sem komið er en ef að eitthvað kemur upp á eftir kl 4 á daginn þá verð ég að keyra til Reykjavíkur.

Bara alveg fáránlegt.

jæja ég ætla að halda áfram að hreynsa út úr skápum.

» 0 hafa sagt sína skoðun

28.08.2008 13:05:10 / myndavel

Lífinu tekið með ró

Já ótrúlegt en satt þá gengur bara vel núna. Ingimar er byrjaður í skólanum og líkar bara vel og það er voðalega gaman að mæta á mornana.

Mér líður bara vel og í síðustu skoðun hafði þrýstingurinn aðeins lækkað þannig að þessi hvíld er alveg að gera sig. Það er að segja hvíld frá vinnu því að það er sko alveg nóg að gera hérna heima er sko alls ekki farið að leiðast ennþá og enn hef ég næg verkefni á hverjum degi. Ég geri reyndar ekki mikið í einu en eitthvað á hverjum degi þá gengur þetta.

Mig langar til að óska henni systu innilega til hamingju með nýja húsið sitt. Hlakka til að koma í heimsókn þegar þið eruð búinn að koma ykkur alveg fyrir.

Af bumbukríli er allt gott að frétta líka miklar og góðar hreyfingar í gangi og stundum finnst mér meira að segja alveg nóg um. það er dálítið finndið að hreyfingarnar núna eru allt allt öðruvísi en síðast Ingimar sparkaði bara upp í rifbeinin á mér en núna er þetta allt niður í grindina með tilheyrandi óþæindum he he. En bara gaman að því.


» 1 hafa sagt sína skoðun

18.08.2008 12:06:24 / myndavel

hmmmmmm

ætlaði ég ekki að vera duglegri að blogga, það hefur eitthvað farið lítið fyrir því, en mér sýnist það ekki skipta það miklu máli það les þetta enginn hvort eð er. Allavegana kommentar enginn.

en gerum eina loka tilraun.

Það hellsta í fréttum er það að ég má ekki vinna meira það sem eftir stendur af þessari meðgöngu. Ég er með allt allt of háan blóðþrýsting, og má í rauninni bara gera sem minnst svo að ég veikist ekki meira.

Ég reyni eftir mestu getu að taka lífinu með ró, en það er nú ekki alveg það auðveldasta þar sem að það gengur alveg rosalega illa hjá mér að fá kallana mína 2 til að hjálpa mér við heimilisstörfin, reyndar stendur sá yngri mun betur enn sá eldri.

en þá er það bara þolinmæðin sem að virkar og að læra að lýta framhjá drulluni og skítnum.

Annars líður mér bara vel og fyrir utan þetta gengur allt bara rosalega vel, Ingimar stóri littli strákurinn minn er að byrja á skólavistun í dag og svo byrjar skólinn hjá honum núna á fimmtudaginn. Mikill spenningur í gangi á heimilinu.


» 1 hafa sagt sína skoðun

05.08.2008 12:53:09 / myndavel

jæja jæja

Þá er sumarfríið búið Og hversdagslífið tekur við. þetta er búið að vera mjög gott sumar búið að fara í fullt af skemmtilegum útilegum og hafa það gott með fjölskyldu og vinum.

Það er bara allt gott að frétta af okkur. Ingimar var að byrja á leikjanámskeiði sem verður næstu 2 vikurnar og eftir það tekur skólinn við.

Við fórum í sónar í síðustu viku en krílið var ekki mikið fyrir að sýna sig. En allt lítur mjög vel út.  þannig að það er fyrir mestu. Blóðþrýstingur er þó í hærri kanntinum þannig að ég þarf að fara að taka því rólega.

Ég er 2 sinnum búinn að fá sónarmyndir. Auðvita er búið að skrappa herlegheitin og hérna er útkoman, ótrúlega gaman að vera farinn að skrappa í smábarnalitum aftur. 

Enjoy G.




» 0 hafa sagt sína skoðun

08.07.2008 13:46:07 / myndavel

Blogg leti

Já það er sko búið að vera blogg leti á þessum bæ. það nennir líka ekki nokkur maður að lesa þetta rugl svo að ég hef ekkert verið að stressa mig við að blogga.

Það er nú samt alveg nóg búið að gerast það er ekki málið. En Þetta var bara allt orðið einhvern veginn of mikið. Núna er ég að reyna að setja fæturnar niður á jörðina og taka bara á daglegum þáttum.

Minka þetta tölvustúss alla daga. Enda mikilvægari hlutir sem þarf að huga að.

adios G.

» 1 hafa sagt sína skoðun

13.03.2008 15:22:25 / myndavel

13 mars

Jamm það er kominn 13 mars og littli gormurinn minn er 6 ára í dag. Vá hvað tíminn virðist fljúgja áfram.

Það er búið að vera svo gaman að honum síðustu daga hann var sko alveg viss um það að hann sé sko núna að byrja í skóla. - sko bara núna strax en ekki í haust.

í morgun þá bað hann mig um að mæla sig því að hann er sko viss um að hann hafi stækkað í nótt.

Annars er ég búinn að vera svaka bissy í dag búinn að baka sjóræningjaköku og gera voðalega fínnt fyrir orminn minn og svo er afmælisveisla núna á eftir.

Allt hrikalega spennandi. Skelli inn myndur af fínu meistarakökuni minni kannski á morgun.

» 2 hafa sagt sína skoðun

10.03.2008 16:40:56 / myndavel

Annasöm helgi

Helgin var nú bara mjög fín, Á laugardaginn fórum við Ingimar til Reykjavíkur og ég náði í vörur til skröppu og svo fór ég í scrap búðina og fékk vörur hjá þeim líka, rosalega spennandi að vera kominn með vörur frá þeim líka.

Svo á sunnudaginn lánaði ég húsið okkar fyrir afmælisveislu fyrir hana Díönu Rós prinsessu. Það var bara mjög gaman og það komu fullt af fólki.

Það sem er helst á dagskrá á næstuni er nú ekkert smáræði. Littli maðurinn minn er að verða 6 ára.
Við ætlum að halda veislu á fimmtudaginn fyrir krakkana á leikskólanum og svo á sunnudaginn verður kaffi boð fyrir aðra.

Hann er sko alveg rosalega spenntur fyrir afmælinu sínu og er líka orðinn mjög spenntur að byrja í skóla.
vá littla krúsið mitt er að fara í skóla.

» 0 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 30
Dagatal
febrúar - 2012
S M Þ M F F L
1234
567891011
12131415161718
19202122232425
26272829
FyrriNæsti