smælaðu framan í heiminn og heimurinn smælar framan í þig
Skóli og skólafélagar
29.09.2005 19:23:54 / myndavel

Fyrsta ritgerðin mín í háskóla

Jæja þá er ég búinn að ljúka fyrstu ritgerðina mína sem ég á að skila í HÍ, Það var nú ekki svo erfitt enda vann ég hana með annari.

Það er aðeins að minka hópavinnan í bili eða þá að ég er að ná betri tökum á náminu.

Ég er ekki neitt smá spennt fyrir helginni þar sem að það er skrapp hittingur á Stokseyri Gaman gaman gaman.

Ég er görsamlega tóm enda búinn að lesa og læra frá mér allt síustu 48 tíma.

kv Gunna


» 1 hafa sagt sína skoðun

28.09.2005 16:53:36 / myndavel

Já ég gleymdi að skora á einhver

Ég ætla að skora á Helgu, Siggu, Millý eða Ellu og svo Sigrúnu systir

Drífið þið ykkur nú og gerið copy og past og svarið þessu.

luv Gunna


» 3 hafa sagt sína skoðun

28.09.2005 16:52:28 / myndavel

Findið hvernig svona æði ganga yfir allt.

jæja lets try.

1. Hvað er klukkan?16:42
2. Hvaða nafn er á fæðingarvottorðinu þínu ? Guðrún Halldóra Vilmundardóttir
3. Hvað ertu kölluð/kallaður? Gunna
4. Hvað voru mörg kerti á síðustu afmæliskökunni þinni? ÉG fékk bara enga köku
5. Gæludýr? Það myndir vera hundurinn okkar hann Búri.

6. Hár? stutt og litað. ( svart)
7. Göt? Eyru
8. Fæðingarstaður? Reykjavík
9. Hvar býrðu? Selfossi
10. Uppáhaldsmatur? Kjúklingbringa, Subway.
11. Einhvern tíma elskað einhvern svo mikið að það fékk þig til að gráta? nei get ekki sagt það
12. Gulrót eða beikonbitar? Bacon - enda sést það á vaxtalaginu.
13. Uppáhalds vikudagur? Mánudagur
14. Uppáhalds veitingastaður? Veit ekki hef líklega ekki fundið hann
15. Uppáhalds blóm? Rósir
16. Hvaða íþrótt finnst þér skemmtilegast að horfa á? Formúlu 1
17. Uppáhalds drykkur? Vatn, Balís
19. Disney eða Warner brothers? Disney
20. Uppáhalds skyndibitastaðurinn? Subway
21. Hvernig er teppið í svefnherberginu á litinn? Flísar- hvítar
22. Hver var síðastur til að senda þér tölvupóst? Sigrún systir
23. Í hvaða búð mundir þú vilja botna heimildina á kreditkortinu? Archiver ( skrappbúð í Mal of Amerika)
24. Hvað gerir þú oftast þegar þér leiðist? GLápa á tv eða ríf mig upp og fer að skrappa.
25. Hvaða spurning sem þú færð fer mest í taugarnar á þér? Hvenær á svo að koma með annað ( barn)
26. Hvenær ferðu að sofa? Milli 23 og 00
27. Hver verður fyrstur til að svara þér þessu? efast um að neinn svari þessu.
28. Hver af þeim sem þú biður um að svara þessu er líklegastur til að svara ekki? Flestir
29. Uppáhalds sjónvarpsþáttur? O.C., CSI, House, Amerikas top model, survivor ofl ofl ofl
30. Með hverjum fórstu síðast út að borða? Á mjög góðan veitingastað á Hjaltlandseyjum með Sveini, Ingimar og ferðafélögum okkar.
31. Ford eða Chevy? Ford ekki spurning
32. Hvað varstu lengi að klára að svara þessu? 10 mínútur.


» 1 hafa sagt sína skoðun

25.09.2005 09:53:31 / myndavel

Ég var klukkuð

Ég var víst klukkuð af henni Svövu og á því að setja 5 tilgangslausar staðreyndir um mig inn á síðuna mína.

HMMMMMMMMMMMMMMMMMMm

Prófum þetta.

1. Ég er forfallin skrappari og það líður varla sá dagur sem að ég hugsa ekki um skrapp.

2. ég er með hrikalega mikla skipurlagsáráttu.

3. Ég get aldrei horft á sjónvarpið í sokkum og á því mjög erfitt með að fara í bíó.

4. Ég þarf að skrifa allt niður sem ég á að gera því að ég gleymi öllu jafn óðum.

5. Uppáhalds tími ársins er haustið.

Jæja þetta tókst

kv Gunna


» 2 hafa sagt sína skoðun

24.09.2005 23:58:49 / myndavel

Það var greinilega svona erfitt að verða 29 ára

Nei nei en það er bara búið að vera alveg rosalega mikið álag á mér þessa vikuna og mikið að gera. Enda er ég alveg búinn. Núna hef ég það bara cósí heima Ingimar farinn að sofa og Sveinn einhverstaðar úti á lífinu.

En talandi um að hafa mikið að gera kl er að verða miðnætti a laugardagskvöldi og e´g er að reyna að klára að læra fyrir næstu viku þetta er nátturulega bara bilun. eða kannski ekki svona er þetta þegar maður fær mikilmennskubrálaði og ætlar sér að vera í fullum háskóla búandi á selfossi með fjölskyldu og alles. Nú er bara að hætta þessu væli sparka duglega í rassin á sér og halda áfram.

meira seinna.

kv G.


» 0 hafa sagt sína skoðun

19.09.2005 17:43:56 / myndavel

19 september.

Jæja þá er þessi blessaði dagur runnin upp.

mig langar að þakka fyrir þær kveðjur sem að ég hef fengið en satt best að segja þá bjóst ég nú við aðeins fleirum en þær sem að ég fékk voru alveg frábærar

Takk fyrir mig.

Ég er búinn að fá einn pakka en það er peysa frá henni teingdó. Dagurinn er barasta alveg búinn að vera ágætur fyrir utan verkefna tíman í Ferðalandafræði sem ég var í í dag vá ég held að ég hafi barasta verið lengst út á hafi og ekki skilið baun, við vorum að ræða um einhver líkön sem að við áttum að finna á netinu en kennarinn útskýrði þetta ekki alveg nóu vel fyrir okkur hvað það var sem að við áttum að vera að skoða svo að helminguinn að bekknum sat bara fyrir framan tölfurnar og voru að velta því fyrir sér hvaða skilning það ætti að leggja á hlutina.

En svo þegar skóinn var búinn þá dreif ég mig upp í lín til að ná í vörur fyrir hana Ingu mína og fékk að tala dálítið um skrapp og þá batnaði dagurinn til muna og svo brunaði ég á selfoss og sótti hann Ingimar minn sem var alveg harður á því að hann ætti að fá ís í dag vegna þesss að það væri afmæli en leikskólakonunrar vildu bara ekki gefa honum apa ís vegna þess að hann ætti ekki afmæli en hann var nú samt alveg með það á hreinu að hann ætti afmæli líka en við fórum bara saman út í sjoppu og fengum okkur apa ís.


» 9 hafa sagt sína skoðun

16.09.2005 20:37:22 / myndavel

Blessaða vísindaferðin

Jæja ég komst ekki í þessa vísindaferð, en ástæðan var sú að ég hélt að hún myndi ekki byrja svona snemma en hún byrjaði kl 16 30 og þá var ég bara ekki með barnapössun á reyðum höndum. En annars var dagurinn bara mjög góður ég greinilega þurfti á því að halda að hvíla mig því að ég var alveg endurnærð seinnipart dags. Ég meiri segja náði að ná sambandi við kennslubókina mína og er núna búinn að finna ágæta leið til þess að geta lært. Ég þarf reyndar að vera annað hvot ein heima eða vera í hljóðeinangruðu herberi því að ég þarf að lesa allt upphátt.

jæja ég ætla að reyna að klára að elda og koma svo Ingimar í rúmið.

kv Gunna


» 0 hafa sagt sína skoðun

16.09.2005 11:35:04 / myndavel

Föstudagur

Jæja þá er þessi langþráði föstudagur mættur á svæðið, ég gerðist svo gróf í morgun að ég hreinlega sleppti því að mæta á þá fyrirlestra sem áttu að vera ég dag. ég skreið heldur bara upp í rúm aftur og breyddi upp yfir haus og hélt áfram að sofa. Það var reyndar alveg mjög þarft verkefni því ég var alveg gjörsamlega búinn á því.

Ég dreif mig svo á fætur um 11 leitið og skellti í allar helstu þvottamaskínur sem til eru á heimilinu og dreif mig svo í að byrja á að gera þau verkefni sem ég á að skila í næstu viku.

Ég var búinn að skrá mig í vísindaferð sem á að fara fram í kvöld en þarf núna að reyna að leita mér upplýsinga um hvar upphafspunktur er og á hvaða tíma svo að ég geti séð mér fært að mæta. Finnst mjög spennandi að vera að fara í vísindaferð en er samt einhvernveginn hálf löt við að fara, kemur í ljós á eftir hvað ég geri.

jæja bulla kannski meira á eftir núna ætla ég að fara vinna verkefni um kynþáttarfordóma og rasisma. ( ekki spurja mig hvað það kemur ferðamálafræði við því að ég er ekki alveg búinn að átta mig á samhenginu sjálf)

adios G


» 1 hafa sagt sína skoðun

13.09.2005 19:20:30 / myndavel

þorði ekki annað en að vista

þar sem talfan mín er svo kilkkuð þessa dagana kemur þetta í mörgum bútum sorrí

í gær skellti ég mér í skrapp hjá henni Torfhildi mikið var nú gaman að komast og skrappa pínu lítið og hugsa um eitthvað annað en lærdóminn.

Annar er alveg nóg að gera í þeim efnum þar sem að ég er með 8 útistandandi verkefni sem þarf að ljúka fyrir 30 september. En hluti af þessu eru hópverkefni svo að þetta reddast allt saman. það er reyndar ´dálítið að pirra mig að ég er ekki að skylja skólabækurnar mínar og allur þessi lestur á ensku er ekki alveg ég.

Svo það skondna er að allt í einu eru nánast allar helgar hjá okkur hjónum óðum að fyllast og það eru að verða fáar helgar þar sem ekkert er skipurlagt og þetta nær fram í miðjan nóvember. Það er langt síðan að ég hef upplifað svona.svo að það er bara allt að gerast.

jæja ég ætla að halda áfram í tilraunaeldamennskunni minni

fréttir af því seinna

kv G


» 2 hafa sagt sína skoðun

13.09.2005 19:16:03 / myndavel

Sorrý blogg tímaleisi

Ég hef ekki haft mikinn tíma til að blogga vegna anna. Það er annars allt gott að frétta, í síðustu viku gekk reyndar allt á afturfótunum og ég var alveg orðinn uppgefinn þegar helginn lét loksins sjá sig. Svona meðal annars það sem var í gangi var að talfan mín neitaði alveg að virka inn á háskólasvæðinu og neitar því reyndar ennþá því að ég kemst ekki inn á netið meðan ég er í skólanum en hætt að láta það bögga mig núna, ég var að drepast í hnéinu og það endaði með sjúkrahúsvist og það var sprautað sterum í hné og mjöðm því að allt var orðið fast. Svo lennti ég í grjótregni á hellisheiðinni og það sprakk framrúðan hjá mér.

En á föstudaginn hitti ég svo hann Reymar bróðir minn og fyldist með honum þar sem hann var að skrifa undir samning um kaup á nýjum bát.

Til Hamingju Reimar. og svo var ég með honum á sjáfarútvegssýningunni og það var bara alveg mjög gaman. Svo á sunnudaginn þá fór ég í bruns til Kjartans bróðurs og það var bara mjög gaman.


» 0 hafa sagt sína skoðun

06.09.2005 18:22:49 / myndavel

þetta er nú meiri vikan

Það er sko skammt stórra högga á milli í þessari fjölskyldu. Í gærkveldi var okkur sko boðið í mat hjá henni Sigrúnu Systir og hún var eitthvað alveg rosalega leindardómsfull. jæja við allaveganna mættum á svæðið og það var lagt á borð fyrir 8 manns ég fór svona að spá í því hvaða 3 væru til viðbótar.

Það kom svo á daginn að það var Ása María systir og maðurinn hennar hann Davis og svo auðvita Iris Ósk. já og Ása og Davis eru bara flutt til Íslands svona alveg án þess að láta nokkurn mann vita af því. Þetta kom sko skemmtilega á óvart, þau eru núna að leita sér að íbúið og vinnu handa Davis og ætla að vera hérna eitthvað áfram.

Annars er nú bara fínnt að frétta, skólin gegnur ágætlega og þetta er alveg hörku vinna, ég er nú ekki alveg nóu duglega að lesa og það gengur dálítið hægt en þetta gengur allt saman.


» 0 hafa sagt sína skoðun

05.09.2005 17:35:19 / myndavel

Fín helgi

Það var barasta ágæt helgi hjá okkur þótt að við gerðum nú ekki mikið, við eiddum laugardeginum í það að þrífa hér allt út úr dyrum og koma skikki á heimilið eftir öll þessi ferðalög. Svo í gær Sunnudag skelltum við okkur í fjölskylduferð með póstinum inn í Þakgil það var bara alveg rosalega gaman og við skemmtum okkur alveg rosalega vel. það var grillað og haft mjög kósí.

á meðan margir fóru í gönguferðir fundum við sveinn einhverja slóða sem hægt var að keyra, mér leist nú svona misvel á þá og það er nú ekki oft sem að ég verð hrædd í bíl og allra síst með honum Sveini mínum þar sem að hann er nú mjög góður bílstjóri og ég tresti honum alveg rosalega vel en þarna tók alveg steininn úr og ég skal alveg viðurkenna það að ég var að drepast úr hræðslu, það var nú kannski ekki að ástæðulausu því að við fórum upp og þá meina ég upp upp upp einhver örmjóan slóða sem að lá að mér fannst í lausu lofti upp einhverjar klappir og 300 til 400 metrar niður. Sveini fannst þetta nú ekki mikið mál og hló að þessu öllu saman en við komumst klakklaust niður aftur og eftir á var þetta bara allt i lagi ( sko þegar ég var kominn niður aftur)  Við komum sko ekki heim aftur fyrr en seint í gærkveldi og þá var bara crúsað fyrir framan tv.

Semsagt alveg virkilega góð helgi. en núna er hún búinn og alvarann tekinn við ég skellti mér í skólan í morgun og er núna kominn á fullt að vinna verkefni og ritgerðir.

Mér líst bara ágætlega á þetta allt saman nema einn áfanga sem að heitir Mannvist 1 og er um Mannvistarlandfræði,???????? ekki spurja þetta er svona hrikalegur hugtaka og fræðigreinakúrs sem að er skilda og kennarinn alveg ferlega strángur.

jæja en þetta hefst allt saman og mér er búið að taka st að lesa allt fyir morgun daginn og gera þau verkefni sem að ég þarf að klára svo að ég er að hugsa um að hætta þessu töfluveseni núna og fara að leika við peyjan minn í sjóræningjaleik.

kv G


» 0 hafa sagt sína skoðun

02.09.2005 17:48:13 / myndavel

jeij Föstudagur

Jæja þá er þessi vika búinn og það er sko búið að ganga á ýmsu ég er sko búinn með eina viku í skólanum og allt komið á fullt búinn að vera á fullu að læra heima í allan dag til að þurfa ekki að læra um helgina. Við förum kannski inn í Þakgil í fölskylduferð með póstinum. Annars lengar mig bara vera heima hjá mér um helgina og hafa það gott.

Vá ég er strax farinn að vinna að fyrstu ritgerðinni minni fyrir skólan, og það á að skila henni í endaðan september, það er svo sem allt í lagi en það er efnið sem er að veltast fyrir mér ég á að skifa um eitthvað ferðamálatengt og ég hreinlega dettur ekkert í hug svona í fljótu bragði. Öll málin sem mig langar til að fjalla um komast ekki fyrir í svona stuttri ritgerð þar sem aðaláherslan er sú að það er verið að kenna okkur að skrifa ritgerð en efnið skiptir engu máli.

Ég er alveg blankó og þigg alveg einhverjar tillögur.

anars segi ég bara góða helgi öll sömul.

kv Gunna Selfossi


» 1 hafa sagt sína skoðun

01.09.2005 19:06:37 / myndavel

Fimmtudagur

vá hvað það var erfitt að drattast á fætur kl 6 í morgun, ég þurfti sko að mæta í skólan kl 8 og must að komast í sturtu áður en ég held af stað. Og það er auðvita alveg típískt að maður sefur alveg rosalega illa ef maður þarf að vakna snemma. En þetta hafðist allt saman og mætti á réttum tíma fór í 2 mjög fína fyrirlestra og svo þegar ég var að klára þá pífti Síminn minn og GESSS HVAÐ það var hún Sigrún Systir mín með þær bestur fréttir sem ég hef fengið mjög mjög lengi.

Það er búið að samþykkja forsamþykki hjá þeim fyrir ætleiðingu á barni. Vá tár tár tár, Núna tekur við mikil pappírsvinna og svo bið eftir barni frá Kína. Þetta er svo frábærar fréttir að ég brosi hringinn.

En svo ´þegar ég var búinn að samgráta og hlæja með henni í ´smá tíma þá fór ég að læra á bókasafninu og svo skellti ég mér í klippingu hjá henni írisi og er orðinn svakalega fín núna.

þrátt fyrir góðan vilja hjá mér þá sé ég ekki fram á það að komast í ræktina á næstu vikum það þarf að samhæfa betur keyrslutíma og svo eru það óviðráðalegar orsakir að þetta tekst ekki hjá mér. Fúllt ég var farinn að hlakka svo mikið til en ég bætti úr því stax í gærhveldi þegar ég fór út að labba með hundinn. Það er ekki mikið en það er eitthvað. hitt verður að koma í ljós.

æ nenni ekki meir verð að sinna matseldinni.

kve Gunna


» 0 hafa sagt sína skoðun


Dagatal
mars - 2010
S M Þ M F F L
123456
78910111213
14151617181920
21222324252627
28293031
FyrriNæsti